Fullyrðingin hér fyrir neðan er sönn.
Fullyrðingin hér fyrir ofan er lygi.
mánudagur, 28. nóvember 2005
þriðjudagur, 4. október 2005
Ávarp
Góðir íslendingar!
Ég bið ykkur öll að minnast áa okkar og ættjarðar.
Megi blessun Guðs og gjöful náttúra færa Íslendingum gæfu um alla framtíð.
Varist hljóðláta trompetinn, og munið, að á bakvið fjallið er annað fjall.

laugardagur, 21. maí 2005
fimmtudagur, 5. maí 2005
Kristi Himmalsferðadagurinn
Já það er uppstigningadagur í dag eins og fyrirsögnin segir. Einhverntíman var logið að mér að uppstigningadagur myndi útleggjast á færeysku "jesúfertilhimnaferðalagadagurinn" en ég hef aldrei séð eða heyrt það í ræðu né riti síðan þannig að ég held að það sé bara kjaftæði, en hugmyndin var góð.
Nú er rúmur mánuður síðan ég setti eitthvað hérna inn og það mætti segja mér að bloggferillinn sé mikilli niðurleið þessi misserin og ég get ekki séð að hann sé eitthvað á leiðinni upp aftur á næstunni því að sumarið er að smella á og þá verður maður sennilega minna við tölvuna. Sjáum til.
Það hefur verið mikið að gera í vinnunni og ég er búinn að læra mikið um fasteignaviðskipti á þessum tveimur mánuðum sem ég hef verið í þessari vinnu. Að vísu hefur það tekið mikinn tíma að taka fólk í atvinnuviðtöl og er lúmskt gaman að því að vera hinum megin við borðið hvað þetta varðar. Maður hefur stundum átt bágt með sig að fara ekki að hlæja þegar maður sér hvernig fólk bregst við þegar það er stressað og þarf að innbyrða mikið af upplýsingum á stuttum tíma. Það virðist til dæmis vera mjög sterkt í mannskepnunni að viðurkenna ekki fávisku sína heldur reyna að láta líta svo út að allt sé "under control". Maður hefur nú svosem oft verið í þeirri aðstöðu í lífinu þó svo að ég reyni að halda því í lágmarki. Það er fátt leiðinlegra en að hlusta á fólk sem þykist vita eitthvað. Heimspekingurinn Sókrates lagði mikið á sig til að rannsaka þennan þátt í mannskepnunni og uppskar dauðadóm fyrir....minnir mig....þannig að þetta er ekkert nýtt af nálinni.
Ég vona að ég sé ekki sá eini sem á eftir að taka nagladekkin undan bílnum en það hefur eitthvað verið á reiki hvaða lög og reglur gilda um sektir hvað þetta varðar þannig að ég fór á stúfana og þetta er niðurstaðan:
Ráðherra virðist hafa heimild í umferðarlögum til að setja reglur um búnað ökutækja
Þá er að skoða reglugerð ráðherra, tók það helsta úr
Aha! Hvenær er þörf?
Og hér er reglugerðin sem kveður á um sektir vegna brota á umferðarlögum
Þannig að þá er málið að vera alltaf með það á hreinu á hvaða heiðum er snjór og hálka þangað til maður setur sumardekkin undir og segjast vera á leiðinni þangað ef löggan stoppar mann.

VIII. Um ökutæki.
Gerð og búnaður.
59. gr. [Ökutæki skal svo gert og því haldið í þannig ástandi að nota megi án þess að af því leiði hættu eða óþægindi fyrir aðra eða skemmd á vegi.]1)
Eigandi eða umráðamaður ber ábyrgð á, að ökutæki sé í lögmæltu ástandi.
Ökumaður skal gæta þess, að ökutæki sé í góðu [ástandi].1) Sérstaklega skal þess gætt, að stýrisbúnaður, hemlar, merkjatæki og ljósabúnaður séu í lögmæltu ástandi og virki örugglega. Sama á við um eftirvagn og tengitæki, svo og tengingu þeirra og tengibúnað.
1)L. 44/1993, 14. gr.
60. gr. [Ráðherra]1) setur reglur2) um gerð ökutækja og búnað þeirra og öryggis- og verndarbúnað fyrir ökumann og farþega, svo og hvaða áletranir og merki skuli setja á ökutæki vegna skráningar eða eftirlits.
Þá er að skoða reglugerð ráðherra, tók það helsta úr
16.02 Hjólbarðar með nöglum eða keðjum.
(1) Þegar snjór eða ísing er á vegi skal hafa snjókeðjur á hjólum eða eftir akstursaðstæðum annan búnað, t.d. grófmynstraða hjólbarða (vetrarmynstur), með eða án nagla, sem veitt getur viðnám. Óheimilt er að nota keðjur þegar hætta er á að það valdi skemmdum á vegi.
(6) Keðjur og neglda hjólbarða má ekki nota á tímabilinu frá og með 15. apríl til og með 31. október nema þess sé þörf vegna akstursaðstæðna.
Aha! Hvenær er þörf?
Og hér er reglugerðin sem kveður á um sektir vegna brota á umferðarlögum
VIII. KAFLI (59. – 70. gr.). Um ökutæki.
59. gr. Gerð og búnaður (sbr. 1. mgr. 60. gr.):
1. mgr.: Hætta eða óþægindi leiða af ökutæki 5.000
-hélaðar rúður 5.000
2. mgr.: Gerð og búnaði ökutækis áfátt.
Eigandi/umráðamaður:
a) Áletranir eða merki 5.000
b) Stýrisbúnaður 10.000
c) Hemlar 10.000
d) Ljósker eða glitaugu 10.000
e) Aðbúnaður ökumanns eða farþega 5.000
f) Útsýn 5.000
g) Öryggisbúnaður 5.000
h) Hraðamælir 5.000
i) Hjólabúnaður
- fyrir hvern óhæfan hjólbarða 5.000
- nagladekk án heimildar 5.000
j) Tengibúnaður 10.000
k) Búnaði fyrir farm áfátt 10.000
l) Hljóðmerkisbúnaður 5.000
m) Útblásturskerfi í ólagi 5.000
Ökumaður: Helmingur af tilgreindri upphæð
Reiðhjól:
a) hemlabúnaði áfátt 5.000
b) ljósum og glitmerkjum áfátt 5.000
c) annað 5.000
Þannig að þá er málið að vera alltaf með það á hreinu á hvaða heiðum er snjór og hálka þangað til maður setur sumardekkin undir og segjast vera á leiðinni þangað ef löggan stoppar mann.
þriðjudagur, 22. mars 2005
Kílówattastundir djöfulsins
Í tilefni viðbjóðslegs rafmagnsreiknings sem kom til mín í dag fór ég á stúfana og fann þetta hér að neðan, langaði að deila því með yður ef ég mætti. Einnig fann ég þetta fyrir þá sem vilja sleppa við seðilgjöldin ef greitt er á heimabanka.
Hver er annars meðalnotkun/áætlun lesenda hér á mánuði? Mín(áætlun) var að hoppa uppí 272 KWh fyrir mars, ætli það sé mikið eða lítið? Áætlun í janúar var 186 KWh þannig að þetta er mikil aukning. Ég var að borga rúmlega 2.000 kall í rafmagn á mánuði en um næstu mánaðamót þarf ég að borga 5.800 kall vegna uppgjörs.
Þeir geta í raun rukkað mann um hvað sem er því hvernig á maður að sannreyna notkunina? Ég vissi nú að maður væri orkulaus yfir skammdegismánuðina en það virðist vera að maður sé farinn að soga rafmagnið úr innstungunum hérna til að halda sér gangandi.
Ekki skemmtilegasti bloggpistillinn hingað til en hvað um það.
Hvernig spara ég rafmagn?
Slökkvið á eftir ykkur
Munið að slökkva á eftir ykkur. Oft loga ljós að óþörfu þar sem engin hefst við. Slíkt getur einnig skapað eldhættu.
Þvottavélin
Fyllið vélina af þvotti. Það kostar álíka mikið að þvo lítinn og mikinn þvott. Hafið ekki of hátt hitastig. Vélin notar 30% minni orku, ef hitinn er lækkaður um þriðjung. Sleppið forþvotti, ef þvotturinn er lítið óhreinn. Það sparar 20% orku. Skolun með köldu vatni fyrir þvott getur sparað orku. Hvort sem um er að ræða þvottavél fyrir klæðnað eða leirtau, er hægt að sleppa forþvotti fyrir vikið.
Þurrkarinn
Vindið þvottinn sem best áður en hann er settur í þurrkarann Hreinsið lósíuna eftir hverja notkun. Setjið hæfilegt magn af þvotti í þurrkarann, hvorki of mikið né of lítið. Hvort tveggja veldur meiri orkunotkun en ef þurrkað er hæfilegt magn í einu. Notið sparnaðarstillingu þegar henni verður við komið.
Örbylgjuofninn
Tími og orka sparast þegar matreitt er í örbylgjuofni. Það tekur 7 mínútur (0,14 kWh) að matreiða 250g af kartöflum í örbylgjuofni, en 25 mínútur (0,22 kWh) á eldavél. Notið eldunaráhöld sem henta örbylgjuofninum. Sjóðið eða hitið matinn í lokuðum ílátum, þannig helst hitinn betur á matnum og orka sparast. Með því að nota lítið vatn þarf styttri suðutíma. Oft er hægt að sleppa vatninu alveg þegar matreitt er í örbylgjuofni.
Eldavélin
Gætið þess að potturinn sé hæfilega stór á helluna. T.d. fer 20% orkunnar til spillis ef potturinn er 2 cm minni í þvermál en hellan. Ósléttur botn á potti eða pönnu getur valdið 40% meiri rafmagnsnotkun. Notið þétt lok á pottinn og takið það ekki af meðan soðið er. Ef lokið er ekki á pottinum þarf tvöfalt meiri orku en ella. Það þarf tvisvar til þrisvar sinnum meiri orku að glóðarsteikja í ofninum en að steikja á hefðbundinn hátt.
Ísskápurinn
Hæfilegt hitastig í kæliskápnum er 4-5°C. Rafmagnsnotkun eykst um 4% fyrir hvert stig sem hitinn er lækkaður. Gætið þess að loftræsting sé nægjanleg bak við kæliskápinn. Léleg loftræsting getur valdið 5-10% meiri rafmagnsnotkun. Kæliskápa sem ekki eru með sjálfvirka afhrímingu þarf að þíða reglulega.
Gleymd notkun
Mörg heimilistæki nota rafmagn jafnvel þó að þau séu ekki í gangi. Þetta eru tæki sem búin eru fjarstýringu og eru tilbúin til að hlýða skipun frá henni t.d. sjónvörp, hljómtæki, myndbandstæki o.fl. Öll þessi tæki auka orkunotkunina. Þó svo að þau taki lítið afl er oftast kveikt á þeim allan sólarhringinn allan ársins hring.
Sjónvörp
Í sjónvarpi getur aflið, sem tækið notar þó slökkt sé á því með fjarstýringu, verið frá 3 til 18 Wött sem þýðir að orkunotkun þessa tækis verður milli 25 og 160 kWh á ári ef tækið er í sambandi allt árið. Þessa eyðslu má spara með því að slökkva alveg á sjónvarpinu auk þess sem það minnkar hættu á íkveikju.
Myndbandstæki
Myndbandstæki sem stjórnað er með fjarstýringu notar um 100 kWh á ári. Það að slökkva alveg á myndbandstækinu hefur bæði kosti og galla. Ef slökkt er alveg á tækinu sparast þessar 100 kWh en á móti þarf oft að endurstilla klukku og dagsetningu þegar kveikt er næst.
Önnur tæki
Spennar fyrir amerísk 110 volta heimilistæki nota orku þó svo að þau séu ekki í gangi. Þá er rétt að átta sig á því að ýmis tæki gætu verið tengd án þess að við munum eftir því t.d. loftnetsmagnarar, rafmagnsklukkur og klukkur í ýmsum tækjum eins og t.d. í örbylgjuofnum, eldavélum og útvarpsklukkum.

mánudagur, 21. mars 2005
Langaði bara að...
...segja Hæ. Alive með Pearl Jam hljómar nú í eyrum mér á meðan ég rita þessi fyrstu orð og það á vel við, ég held að ég sé að lifna við. Er búinn að vera heiladauður nánast síðustum misseri og hef ekki fundið ástæðu til að vera mikið að tjá mig. Það er reyndar ekki nein sérstök ástæða núna heldur nema sú kannski að stundum verður maður bara að láta vita að maður sé til. Get varla útskýrt það öðruvísi. :)
Byrjaði í nýrri og spennandi vinnu með skólanum um mánaðamótin síðustu og er núna titlaður gæða- og starfsmannastjóri á fasteignasölu hér í borg, og svo var ég að frétta það í dag að ég muni vera vefstjóri yfir sjö misstórum vefsíðum á þeirra vegum þannig að það ætti að vera nóg að gera á næstunni. Eins og sést þá er mikið af stjóratitlum í þessu en það er nú bara fyndið og skiptir engu máli en þó segir það meira en orðið fulltrúi. Ég var tryggingafulltrúi í Tryggingastofnun Ríkisins en ég vissi aldrei hvað orðið fulltrúi þýddi almennilega. Stjóri stýrir en hvað gerir fulltrúinn? Fulltrúir hann? Trúir hann á fullu? Hvað er til dæmis markaðsfulltrúi?
Hér er Draumadeildin, nennti ekki að föndra mynd copy/paste verður að duga:
Lið í þessum hóp Stig Stig í síðustu umferð
Butts_BlingBling 2780 340 [Eyða þessum úr hópnum]
kingpin fc 2620 490 [Eyða þessum úr hópnum]
Góðbjór Albions 2620 340 [Eyða þessum úr hópnum]
Komaso! 2610 320 [Eyða þessum úr hópnum]
Mendozas fat dogs 2610 300 [Eyða þessum úr hópnum]
Wengers understudy. 2550 280 [Eyða þessum úr hópnum]
Hudz F.C 2540 290 [Eyða þessum úr hópnum]
Winchtestertonf 2540 460 [Eyða þessum úr hópnum]
F.C Tinni 2500 340 [Eyða þessum úr hópnum]
Gúrkan 2400 410 [Eyða þessum úr hópnum]
Ólafsrauður 2010 300 [Eyða þessum úr hópnum]
Sævar er á toppnum, Haddi í duftinu. Aðrir eru þar á milli. Punktur.
Speki í lokin:
Lífið er allt í strikum, á maður að forðast þau eða á maður að fara yfir þau? Á maður að taka sénsa?

fimmtudagur, 10. febrúar 2005
H-karl
Jæja lífið æðir áfram eins og stjórnlaus göngugrind og lítið hægt að gera við því.
Ég er búinn að vanrækja update á Draumadeildinni en nú er komið að úrbótum. Hér eru úrslit síðustu helgar og staðan eins og hún er í dag:
Eins og sést þá ætti þessi mynd að snúa akkúrat öfugt þetta ætti að vera í einhverju samhengi við gengi liða fyrir áramót. Nema Ólafsrauður, hann er á sínum stað. Guðni/Fat Dog... er á toppnum eins og er og Höddi/Hudz bróðir hans skrefinu á eftir. Palli/Winchtestertonfieldville Wallabees fengu fæst stig og verður að segjast að brokkgengið er mikið á þeim bænum. En ég get nú lítið sagt víst því að ég er næstlægstur, en það mun breytast áður en yfir líkur. Mér sýnist umferð helgarinnar ætla að vera frekar erfið því spái ég miklum sætaskiptum eftir hana. Sjáum til.
Þorrablót í sveitinni á laugardaginn. Hefur gjarnan verið mikið um kæsta hákarla og æsta karla, spurning hvernig þetta verður núna.
Annars er lítið að frétta, nú eru kosningar í H.Í.. Fjórir listar berjast um sæti í Stúdentaráði og einhverju fleiru. Ég get ómögulega æst mig mikið yfir þessum kosningum frekar en öðrum pólitískum kosningum en hef þó tekið afstöðu með Vöku aðallega vegna þess að ég þekki nokkra mæta menn sem styðja Vöku og því er ég í raun að styðja þá frekar en aðra. Viðurkenni það fúslega að ég er hálfgerður vindhani í þessari háskólapólitík og fer frekar eftir tilfinningu en málefnum. Málefnin eru nú líka ósköp svipuð eftir því sem ég fæ best séð, enda er það eðlilegt, allir að vinna að því sama og rótgróin pólitísk hugmyndafræði(sbr. hægri-vinstri) kemur málinu ekki við. Allavega er enginn að boða einkavæðingu eða eitthvað álíka, enda væri það svolítið kjánalegt að einkavæða klósettin eða ljósritunarvélarnar...eða hvað?

Hér má hins vegar sjá æstan hórkarl:
Þetta var nú sérdeilis fyndið.

fimmtudagur, 27. janúar 2005
Skrýtnivísitalan
Ég virðist vera svona þokkalega normal, bjóst samt við að ég væri meiri meðaljón. Vill einhver vera meðaljón? Viltu meðal Jón? Jæja hafðu það eins og þú vilt.
Taktu prófið með því að smella á myndina neðst í pistlinum og segðu svo frá í comment.

Thanks for taking the Weird Quotient test
Your score is:
93
Of all the weird test takers:
61% are more weird,
11% are just as weird, and
27% are more normal than you!
mánudagur, 17. janúar 2005
Loðinn lúsífer
Þó að ég sé ekki í miklu bloggstuði þessa dagana þá finn ég mig knúinn til að halda áfram birtingu á vikulegum úrslitum í Draumaleiknum sem við nokkrir félagar erum að keppa í til dægrastyttingar.
Leiknum var skipt í tvennt, fyrri og seinni umferð, og lauk fyrri umferð um áramót. FC Hudz(Höddi frá Lyngási) skaut eldri og reyndari mönnum ref fyrir rass á lokasprettinum og sigraði semsagt þessa fyrri umferð. Ég þykist vita að aðrir keppendur séu ekki alveg sáttir við þessi úrslit og ætli að hefna ófaranna, ég er þar á meðal. Eins og sést á færslunni frá 23. des 2004 þá var ég efstur og nokkuð brattur með mig en allt kom fyrir ekki.
En nú er búið að núlla allt heila klabbið og þá sitja allir við sama borð á nýju ári. Þeir sem voru í neðri hlutanum í hópnum hljóta að vera hæstánægðir með þetta fyrirkomulag, t.d. Gúrkan(Bjössi) og Butts_BlingBling(Sævar fjallahundur).
En eins og sjá má hér á myndinni fyrir neðan þá skeit ég á mig bleyjulaus í þessari fyrstu umferð ársins og er langneðstur. Ég gæti kannski reynt að koma með einhverjar afsakanir en þegar öllu er á botninn hvolft þá valdi ég bara vitlaust í liðið. Ég er vanur því að fara ekki alveg hefðbundnar leiðir í mannavali þegar ég er að keppa í svona leikjum og það hefur reynst mér happadrjúgt hingað til þó að stöku sinnum klikki það eins og t.a.m. núna. Mér til málsbóta þá get ég upplýst um það að ég er með tvö önnur lið í Draumaleiknum og annað þeirra fékk 480 stig, sem hefði dugað til að lenda í öðru sæti í hópnum Apollon eftir þessa umferð.
En semsagt FC Tinni(Ívar Örn frá Hellu) er maður vikunnar en það má í raun segja að þeir sem náðu yfir 400 stiga múrinn séu yfirmennirnir þangað til að næsta umferð rennur upp.
Ég vil taka það fram að ég þoli ekki að byrja illa í keppnum sem þessum. Þetta minnir mig á þegar maður fer í golfmót í góðum fíling og ætlar að vanda sig og vera skynsamur, 18 holur framundan, 5 klukkutímar af vonandi góðu golfi en svo fær maður sprengju á fyrstu holu og eyðileggur skorið gjörsamlega. Dagurinn ónýtur. Þetta minnir mig semsagt á það en það sem bjargar þessu varðandi þennan Draumaliðsleik er að keppinautarnir eru svo miklar pissudúkkur að það er ennþá góður möguleiki að sigra þetta...

föstudagur, 7. janúar 2005
Æ
Tók bloggpennann úr öskjunni, settist við bloggborðið og ætlaði að blogga. Þetta er útkoman. Blogggyðjan hefur yfirgefið mig.
þriðjudagur, 28. desember 2004
Sérstaklega fyrir Björn
Síðasta umferð fór þannig að Bjössi og Gúrkan fengu 600 stig og þar af leiðandi flest stig af þeim sem eru í hópnum Apollon. Ég er enn efstur og jók forskot mitt. Ánægður Björn?
Það er önnur umferð í dag og á morgun, ég held að það sé síðasta umferð ársins og því má segja að keppnin sé hálfnuð. Sjáum til hvort að ég taki ekki nettan pistil að þeirri umferð lokinni.

þriðjudagur, 14. desember 2004
AAAAAAAAAAAARRRRG!!!!!
Ég þooooli þetta Liverpool lið ekki mikið lengur!!!
(%$#"/((%)&%#"#!!¨!%"&$##//(**Ritskoðað**
Fantasy blog
Óhætt að segja að skorið hafi verið mjög spes þessa umferðina:
Tinni og Wenger's understudy eru jafnir á toppnum, Góðbjór Albions hlýtur að vera súr. Ég dett niður í 5. sæti úr því fjórða, Hudz stóð sig nokkuð vel, of vel. Gúrkan og Butts eru eitthvað að láta vita af sér þarna niðri. Wallabees virðast heillum horfnir, eða hvað? Mendoza skeit alvarlega í sig og er kominn í skorflokk með Ólafsrauð sem hlýtur að teljast mjööög slæmt. Lítur út fyrir að Kingpin sé ekki að spá í þetta.
Ég verða að viðurkenna að ég skil ekki alveg það sem stendur á forsíðunni á Draumadeildarsíðunni. 3 umferðir eftir? Ég skil það að verðlaunum sé skipt fyrir og eftir áramót en munu stig núllast um áramót??? Veit það einhver?
ps.
Er annars bara að lesa og því er ég ekki aktívur í neinu þannig séð - semsagt til að útskýra bloggleysi og annað leysi.

miðvikudagur, 8. desember 2004
Jólin eru komin!
Við unnum 3-1 og það mátti ekki tæpara standa, urðum að vinna með tveimur mörkum.
Þvílíkur leikur!
Læt myndirnar tala, get ekki skrifað meira.
Mark Baros dæmt af
Núnez ekki að vinna vinsældakosningar 0-1
Pongolle jafnar 1-1
Mellor kemur okkur yfir 2-1
Gerrard klárar dæmið 3-1
Gaurinn brosir!

Do or die...
Djöfulsins ruddaleikur í kvöld - púllarar allra landa sameinist! - meistaradeildin eða dauði. Besti leikmaðurinn okkar, Steven Gerrard, búinn að segja beint/óbeint að hann sé farinn í sumar ef við vinnum ekki í kvöld. Ef hann fer þá erum við í mjög vondum málum og brottför hans gæti haft dominó-áhrif í för með sér.
Sagan segir að við verðum að vinna annaðhvort 1-0 eða lágmark með tveimur mörkum ef Olympiakos skorar mark/mörk. Djöfulsins spenna! Djö-ful-sins spenn-AAA! Hvar er Valíumið?
Var annars að vakna á milli 10 og 11 eftir að hafa sofið 2-3 tíma aðfararnótt þriðjudags, nú er lærdómur fram að leik.
Hvar ætla menn að naga neglurnar yfir þessu?
ps.
DV halda áfram að djöflast í Ástþóri - og ég fíla það...hehehe.

mánudagur, 6. desember 2004
Stuð og fjör!...þú skilur...;)
Hvers vegna féll þjóðveldið?
Til að svara þessari spurningu þarf fyrst að komast að niðurstöðu um hvað þjóðveldið var. Þetta geta í raun verið tvær mismunandi spurningar eftir því hvað við teljum þjóðveldið hafa verið.
Við getum litið svo á að þjóðveldið hafi verið það samfélagsform sem var við lýði á Íslandi fram til 1262, þegar landsmenn féllust á yfirráð Noregskonungs, án tillits til þess hvernig stjórnarfar þróaðist á þeim tíma.
Einnig er hægt að líta svo á að þjóðveldið hafi verið það stjórnarform sem lýst er í Grágás, lögbók þjóðveldisins, og öðrum ámóta heimildum og einkenndist af goðorðum. Þetta stjórnarform byggði á persónulegum tengslum goðanna við bændur (þingmenn goðanna) sem tilheyrðu goðorði þeirra. Goðorðin höfðu engin landfræðileg mörk og gátu þingmenn tveggja eða fleiri goðorða búið hverjir innan um aðra þótt yfirleitt byggju flestir þingmenn hvers goðorðs nálægt goðanum. Goðorðin líktust bandalögum þar sem goði og þingmenn voru skuldbundnir til að styrkja hverjir aðra; vernda og verja fyrir ágangi annarra. Þingmenn höfðu síðan rétt (að minnsta kosti í orði kveðnu) til að „færa þingfesti sína”, það er flytja sig úr einu goðorði í annað án þess að færa búsetu sína.
Þetta stjórnkerfi var afar veikt og átti erfitt með að taka á stórum vandamálum, setja niður deilur voldugra manna og tryggja friðinn. Það gekk aðeins meðan valdajafnvægi ríkti meðal goðanna. Menn virðast hafa gert sér grein fyrir þessum veikleika kerfisins og því lagt ríka áherslu á að viðhalda jafnvæginu, sem tókst í stórum dráttum fram undir aldamótin 1200. Engu að síður voru komin fram fáein héraðsríki nokkru fyrir þann tíma; þau helstu í Árnesþingi og í Skagafirði. Héraðsríkin urðu oftast til við samruna tveggja eða fleiri goðorða og voru þeim frábrugðin í því að þau höfðu föst landamæri og því gátu menn ekki lengur fært þingfesti sína heldur réðst hún af búsetu. Með þessu varð mikil breyting á sambandi goða og þingmanna sem fór að líkjast fremur sambandi yfirvalds og þegna. Að forminu til voru yfirmenn héraðsríkjanna aðeins goðar, eins og fyrirrennarar þeirra, en vald þeirra var orðið mun meira en áður enda voru þeir yfirleitt kallaðir höfðingjar fremur en goðar.
Um aldamótin 1200 varð mikil hreyfing á Íslandi í myndun nýrra hérðasríkja. Höfðingjavald efldist þá stórum og um 1220 má segja að nánast allt landið hafi skipst á milli 10 eða 12 ríkja. Ef við eigum við hina fornu stjórnskipun með hugtakinu þjóðveldi má segja að það hafi þegar verið liðið undir lok á þessum tíma. Fram til 1262 má segja að Ísland hafi verið lauslegt samband nokkura smáríkja þar sem sameiginleg yfirstjórn var varla til.
Orsakirnar fyrir þessari breytingu eru umdeildar. Sumir hafa talið að stofnun biskupsstólanna í Árnesþingi (í Skálholti) og í Skagafirði (á Hólum) hafi kallað á samþjöppun veraldarvalda til mótvægis við vaxandi vald biskupanna og því hafi héraðsríki fyrst orðið til í Árnesþingi og Skagafirði. Síðan hafi þetta valdið keðjuverkun þar sem grannar hinna nýju héraðshöfðingja hafi þurft að mynda mótvægi gegn völdum þeirra og þannig hafi goðorðin fallið hvert af öðru eins og dómínókubbar kringum landið. Aðrir hafa bent á að náið samband var á milli fyrstu biskupanna í Skálholti og héraðshöfðingjanna í Árnesþingi enda voru þeir allir af sömu ættinni. Einnig hefur verið á það bent að líklega hafi mismunur ríkra og fátækra farið vaxandi frá landnámstímanum og sífellt auðugri menn voru að koma fram. Stjórnkerfi þjóðveldisins var ekki nægilega öflugt til að halda slíkum mönnum í skefjum ef þeir vildu fá sitt fram með valdi og þessar aðstæður kölluðu á öflugra yfirvald en áður.
Fræðimenn hafa ekki orðið á eitt sáttir um orsakir þess að héraðsríkin mynduðust en ef til vill má segja að allar skýringarnar feli í sér að samfélagið varð sífellt flóknara eftir því sem tíminn leið frá landnámi, hvort sem það var með tilkomu kirkjunnar, eflingu auðmanna eða af öðrum orsökum. Goðorðakerfið var of veikburða til að takast á við þessar breyttu aðstæður og því leituðu menn annarra lausna.
Hér má hafa í huga að goðorðakerfið var einstakt í heiminum en höfðingjaveldið sem við tók var aftur á móti lítt frábrugðið því sem hefur einhvern tíma tíðkast í flestum löndum heims.
Í raun er það svo allt önnur spurning hvers vegna Íslendingar gerðust þegnar Noregskonungs árið 1262. Eftir að héraðsríkin voru orðin allsráðandi leið ekki á löngu þar til þau fóru að berjast sín á milli um forræði á landinu öllu. Með héraðsríkjunum var komið fram mun öflugra valdatæki en verið hafði og höfðingjarnir gátu nú safnað stórum herjum til að koma málum sínum fram með illu ef það tókst ekki með góðu. Valdajafnvægi var úr sögunni og nokkuð augljóst að allt stefndi í að landið yrði sameinað undir eitt vald. Þjóðveldið, í hvaða skilningi sem er, var þegar hér var komið sögu dauðadæmt. Spurningin var aðeins hvað tæki við.
Síðari tíma Íslendingum hættir til að líta á þessa atburði í ljósi sjálfstæðisbaráttu 19. og 20. aldar og telja oft að það mikilvægasta í sambandi við konungshyllinguna 1262 hafi verið „missir sjálfstæðis”. Óhætt er að fullyrða að 13. aldar Íslendingar hafa ekki litið svo á. Nútíma þjóðernishyggja, með höfuðáherslu á sjálfsforræði þjóða, er síðari tíma fyrirbæri og var óþekkt á miðöldum. Vandamálið sem blasti við á Íslandi um miðja 13. öld var fyrst og fremst hvernig ætti að koma á friði í landinu og tryggja um leið sæmilegt öryggi fólks. Hin augljósa leið var að koma öllu landinu undir eina stjórn og sennilega hefur mörgum verið ljóst að þróunin stefndi í þá átt.
Það sameiginlega yfirvald sem komst á var hið norska konungsvald en fræðilega er ekkert því til fyrirstöðu að það hefði getað verið eitthvað annað. Sem dæmi má nefna að landið hefði getað orðið sjálfstætt jarlsdæmi í lauslegum tengslum við Noreg. Ýmsir höfðingjar virðast hafa stefnt að slíkri lausn og konungsvaldið sýnist hafa verið að reyna að koma til móts við slík sjónarmið með hinu skammlífa jarlsdæmi Gissurar Þorvaldssonar sem lauk með dauða hans 1268.
Einnig hefði komið til greina að stofna sérstakt konungsríki á Íslandi en vegna náinna sögulegra og menningarlegra tengsla við Noreg er óvíst að það hafi verið talið raunhæft. Noregskonungur var áhrifamikill á Íslandi frá fornu fari og til hans leituðu Íslandingar í miklum mæli að sækja sér upphefð. Hin augljósa lausn á vanda Íslands á 13. öld hlaut því að felast í því að tengjast Noregskonungi með einhverjum hætti enda vann konungur að því leynt og ljóst um þessar mundir að safna undir sig byggðum norrænna manna við norðanvert Atlantshaf.

föstudagur, 3. desember 2004
G'day sir!
Góðan dag! Er ekki kurteisi að bjóða góðan daginn? Mætti kannski spyrja ákveðinn kennara í Lagadeild að því...
Lítið sem ekkert í gangi annars. Setti lítinn og sætan jólasvein hér í hliðarsvæðið eins og sjá má. Hann lýsir kannski anda jólanna betur en kókakólajólasveinninn. Man annars einhver afhverju jólin eru haldin? Fæddist ekki Jóhannes í Bónus þá...?
Gestabókin er risin upp frá dauðum, situr hún við hægri hönd innleggja almáttugra og mun þaðan koma, að dæma lifendur og dauða. Fann hana útí frosinni mýri og náði að endurlífga hana með því að gefa henni heitt kakó og rauða stafi. Hvet fólk sem ekki hefur skrifað í hana að skilja eftir sporin sín þar, þarf ekki að vera merkilegt til að teljast gilt sem gestabókarskrif.
Er annars farinn austur að gefa rollunum.
ps.
Speki dagsins: "Allt er í eðli sínu einfalt, það er bara einhver búinn að gera það flókið."

miðvikudagur, 1. desember 2004
Í tilefni daxins

Samningar náðust 1918 um fullveldi Íslands í konungssambandi við Danmörku. Sambandslagasamningurinn var lögtekinn í báðum löndum og tók gildi 1. desember 1918.
Ísland var nú orðið ríki út af fyrir sig, konungsríkið Ísland, og hafði samningsbundinn rétt til að segja upp sambandinu við Danmörku að 25 árum liðnum.
Fullveldið 1918 var stærsta formlega skrefið til sjálfstæðis landsins. Því var fylgt eftir 1944 með því að slíta sambandinu við Danmörku og stofna sjálfstætt lýðveldi. Það var gert á Þingvöllum á fæðingardegi Jóns Sigurðssonar 17. júní.
Hundrað árum áður bjuggu Íslendingar við einveldi erlends konungs. Nú nutu þeir óskoraðs sjálfstæðis í eigin þjóðríki.
þriðjudagur, 30. nóvember 2004
Afturhaldskommatittsflokkur...
...eða afturhaldshommatittsflokkur eins og virðulegur fréttamaðurinn á Rás 2 sagði í fjögurfréttum í gær...mismælti sig greyið. Alltaf fjör á Alþingi þegar Davíð verður pirraður. Öllu fjörugra en til dæmis fyrirspurnin sem Björgvin G. Sigurðsson kom með á Alþingi til iðnaðarráðherra þann 7. okt síðastliðinn, endilega kíkið á hana með því að smellla hér.
Annars er nú meira vælið í Arsenal-mönnum í dag, tek hér eitt dæmi;
Einmitt vinur, injuries my ass! Ekki tala um injuries við okkur Liverpool-menn. Ætli þeir þurfi bara ekki eitt gott faðmlag frá mömmu þessir kjóar.......hehehe.
Var í síðasta tímanum í morgun í Almennri lögfræði. Nú er upplestrarfríið formlega byrjað í því fagi en þarf samt að fara í einn tíma enn í Réttarsögu á föstudaginn. Nú hefst lesturinn ofurlegi.
Talandi um lestur. Keypti bók Jóns Steinars Gunnlaugssonar um daginn, "Um fordæmi og valdmörk dómstóla", sem hann gaf út í fyrra. Þessi bók er snilld og einmitt bókin sem ég þurfti á að halda á þessu stigi í náminu. Hann dregur hlutina saman á hnitmiðaðan og "einfaldan" hátt, allavega miðað við fyrirrennara hans í lagabókaskrifum. Þeir sem hafa lesið eitthvað undanfarið hér á síðunni hafa eflaust tekið eftir því að ég hef mikið vælt um langlokuskrif og þvælt orðalag í þessum fræðibókum í lögfræði. Í innganginum í bók Jón Steinars fékk ég eins konar "backup" á þessari skoðun minni. Hér er tilvitnun í innganginn;

Henry: Injuries to blame
Arsenal striker Thierry Henry believes a catalogue of injury problems have contributed to the Gunners' slump in form of late.
Einmitt vinur, injuries my ass! Ekki tala um injuries við okkur Liverpool-menn. Ætli þeir þurfi bara ekki eitt gott faðmlag frá mömmu þessir kjóar.......hehehe.
Var í síðasta tímanum í morgun í Almennri lögfræði. Nú er upplestrarfríið formlega byrjað í því fagi en þarf samt að fara í einn tíma enn í Réttarsögu á föstudaginn. Nú hefst lesturinn ofurlegi.
Talandi um lestur. Keypti bók Jóns Steinars Gunnlaugssonar um daginn, "Um fordæmi og valdmörk dómstóla", sem hann gaf út í fyrra. Þessi bók er snilld og einmitt bókin sem ég þurfti á að halda á þessu stigi í náminu. Hann dregur hlutina saman á hnitmiðaðan og "einfaldan" hátt, allavega miðað við fyrirrennara hans í lagabókaskrifum. Þeir sem hafa lesið eitthvað undanfarið hér á síðunni hafa eflaust tekið eftir því að ég hef mikið vælt um langlokuskrif og þvælt orðalag í þessum fræðibókum í lögfræði. Í innganginum í bók Jón Steinars fékk ég eins konar "backup" á þessari skoðun minni. Hér er tilvitnun í innganginn;
"Mér finnst þeir sem skrifa um lögfræði hafa nú fremur en áður tilhneigingu til að skrifa langt og stundum fremur óskýrt mál þar sem meginefni hverfur í málæði um einskis verða hluti og aragrúa tilvitnana í aðra höfunda sem sagt hafa það sama á undan. Það er eins og menn telji að fræði þeirra verði metin af lengdinni og umfangi umbúðanna."Nákvæmlega, takk fyrir þetta.
mánudagur, 29. nóvember 2004
Ekki orgasmic sensation!
USSSS!!! SUSSSSS!! OG SVEIATTAN!!!
Þetta var nú ljóta umferðin, allavega hvað mig varðar. Bræðurnir 3(Kiddi, Guðni og Höddi) riðu feitum hesti frá umferðinni og spurning hvort að þarna hafi verið ólöglegt samráð á ferðinni...hmmmm?
En eins og sjá má þá voru Góðbjór Albions hlutskarpastir í þetta sinn og hafa þeir með frammistöðu sinni náð toppsætinu af Wengers understudy. Hudz F.C. stukku fram úr Winchtestertonfieldville Wallabees sem halda áfram að hríðfalla niður töfluna. Athyglisvert er að sjá tvö lið í neðri hlutanum sem eru að sýna klærnar; Mendozas Fat Dogs og Gúrkuna, þeir eru greinilega búnir að taka þumalinn úr rassgatinu loksins...hehehe.
Ég held 4. sætinu með naumindum eftir vægast sagt lélega frammistöðu. Ég fór ekki alveg hefðbundna/"örugga" leið þessa umferðina og því bjóst ég við sviptingum en ég var að vona að þær yrðu á jákvæðan hátt. Win some, lose some. Ég hef enga afsökun, ég hreinlega skeit á mig í þetta sinn.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)