Ég þooooli þetta Liverpool lið ekki mikið lengur!!!
(%$#"/((%)&%#"#!!¨!%"&$##//(**Ritskoðað**



Henry: Injuries to blame
Arsenal striker Thierry Henry believes a catalogue of injury problems have contributed to the Gunners' slump in form of late.
"Mér finnst þeir sem skrifa um lögfræði hafa nú fremur en áður tilhneigingu til að skrifa langt og stundum fremur óskýrt mál þar sem meginefni hverfur í málæði um einskis verða hluti og aragrúa tilvitnana í aðra höfunda sem sagt hafa það sama á undan. Það er eins og menn telji að fræði þeirra verði metin af lengdinni og umfangi umbúðanna."Nákvæmlega, takk fyrir þetta.


Veðrið
Eitt lágtrýst, 994 hPa. millum Íslands og Føroya fer skjótt eystureftir og dýpist. Vestan fyri lágtrýstið rekur køld luft móti Føroyum. Lágtrýstið við Lofoten fer spakuliga í landsynning. Hátrýstið yvir Grønlandi fer somuleiðis í landsynning og verður væntandi yvir Føroyum leygardagin.
"Hugsanlegt er að lagaákvæði..."Það er einhver svona undirliggjandi tónn í þessu sem er að fullyrða aldrei um neitt. Það er svosem skiljanlegt í ljósi endanlausra undantekninga í lagafrumskóginum. Samt fyndið. Og svo toppar einn virtasti lagaskápur landsins þetta í Fréttablaðinu í gær með því að segja þetta um ímynduð veikindi kennarana: "Ég fæ ekki betur séð en að þetta sé mjög nærri því að vera ólöglegt". Það er gaman að þessu, þetta á eftir að gera mann snarruglaðan allt saman. Þó er ekki gott að fullyrða neitt um það.....
"Rétt getur verið að víkja frá þeirri reglu að..."
"Almennt er viðurkennt að..."
"Það er álitamál hvort telja beri..."
"Óhætt þykir að slá því föstu..."(nærri þvi fullyrðing!)
"Orða má það sem almenna reglu að..."
"Því hefur verið haldið fram að..."
"Orða má það sem almennt sjónarmið..."
"Segja má að..."
74.grein, 3.mgr.Ég á ekki orð yfir siðleysi Kristins Björnssonar fyrrverandi forstjóra Skeljungs og núverandi hálfvita. Talaði um í viðtali við Stöð 2 í vikunni að "sér hafi orðið hált á svellinu", HÁLT Á SVELLINU?! Hvað er að þessu kvikindi? Og svo toppaði hann þegar hann sagði við fréttamanninn að sér þætti "ósmekklegt" að það væri verið að blanda konunni hans í þetta mál. Kallast þetta ekki að kasta steinum úr glerhúsi? Eða að kasta kleinum úr bakaríi jafnvel?
Í húsreglum fjölbýlishúsa skal m.a. fjalla um neðangreind atriði:
1. Umgengni um sameign og um afnot hennar og hagnýtingu.
2. Bann við röskun á svefnfriði í húsinu a.m.k. frá miðnætti til kl. 7 að morgni og undanþágur frá því banni.
3. Skiptingu afnota sameiginlegs þvottahúss.
4. Hvernig þrifum sameignar og umhirðu lóðar skuli háttað og hverjar séu skyldur eigenda í því efni.
5. Reglur um hunda- og/eða kattahald sé það leyft, sbr. 13. tölul. A-liðar 41. gr.
6. Reglur um afnot sameiginlegra bílastæða.
7. Reglur um hagnýtingu séreigna að því marki sem unnt er.
"Mér finnst ótrúlegt hvað fræðingar geta flækt einfalda hluti fram og aftur, og þá er ég sennilega aðallega að tala um lögfræðinga. Ég hef oft verið í þeirri stöðu að vera ansi sáttur með einhverja lærdómslotu þar sem ég tel mig hafa komist að einhverri "solid" niðurstöðu um eitthvað ákveðið atriði, tel mig hafa skilgreint eitthvað sem ég hafði ekki hugmynd um hvað var áður en ég fór að lesa, svo fer ég að lesa aðeins meira. Og þá gerist það, hugtakið er tekið og krufið gjörsamlega niður í kvarka. Tökum dæmi um fordæmi í Hæstarétti; það eru nákvæmlega 153 blaðsíður í kennslubókum sem ég er búinn að vera að lesa um hvað sé fordæmi síðustu daga, ásamt öðru ítarefni. Eftir að hafa lesið þetta þvælda efni eftir sitthvorn fræðinginn er ég ekki miklu nær, farinn að halda að þetta sé fordæming..."
"Any intelligent fool can make things bigger and more complex... It takes a touch of genius - and a lot of courage to move in the opposite direction."
Albert Einstein

:::Innskoti lokið:::
Þetta var að berast mér og ég ákvað senda þetta áfram, enda ekki fráleit hugmynd...
Olíufélögin stálu af okkur peningum í mörg ár. Það liggur skýrt fyrir í niðurstöðum samkeppnisstofnunar. Þeir viðurkenna það, en segja að málið sé fyrnt.
Þeir vilja ekki borga sektir eða skaðabætur vegna þess að það er svo langt síðan þeir stálu frá okkur.
Við getum svarað fyrir okkur.
Það þýðir ekkert að hafa bensínlausan dag. Það er bara rugl því þá verslum við bara meira á morgun.
Við refsum þeim með buddunni og kaupum BARA BENSÍN!
Alveg þangað til þeir hætta að röfla og borga sínar sektir og skammast sín þá kaupum við BARA BENSÍN. Ekki sígarettur, ekki pylsur, ekki hreinsiefni, leikföng, nammi, mat, hanska, grill né neitt annað, við kaupum allt slíkt annars staðar.
Hjá olíufélögunum kaupum við BARA BENSÍN! EKKERT ANNAÐ! Þeir finna fyrir því.
Dreifðu þessu á þína vini og stattu við það að kaupa BARA BENSÍN.
Næst þegar þú freistast til þess að kaupa eitthvað annað á bensínstöð en BARA BENSÍN þá sannar þú orð markaðsstjóra OLÍS sem sagði í samráðinu "Fólk er fífl".
Vilt þú láta hafa þig af fífli? Ef ekki þá kaupir þú BARA BENSÍN.
Almenningur.
Félögin sem um ræðir eru:
Skeljungur(Shell), OLÍS og ESSO