föstudagur, 16. júlí 2004

Upp segi ég og skrifa!

Fer á Hellu á eftir í slökun, væri til í að taka smá golf og hafa það gott.

Annars endaði uppsagnarbréfið mitt svona.

Tryggingastofnun ríkisins

Xxxxxxxxxxxxxxxx,
Deildarstjóri á sjúkratryggingasviði TR.

Reykjavík, 16. júlí 2004.



Ég undirritaður, Xxxxxxxxxxxx, kt. xxxxxx-xxxx, segi hér með upp störfum hjá Tryggingastofnun ríkisins. Óska ég eftir að semja um uppsagnarfrest þar sem aðstæður mínar bjóða mér ekki upp á að vinna hann allan, því styttri sem hann er því betra fyrir mig.

Ástæða uppsagnar er upphaf náms við Háskóla Íslands haustönn 2004, kennsla hefst þann 1. september 2004. Óska ég því eftir að vera laus frá störfum ekki seinna en frá og með þeim tíma.

Að endingu vil ég segja að ég hef verið mjög ánægður í starfi hér í TR, bæði með samstarfsmenn, yfirmenn og allar aðstæður til vinnu.


Virðingarfyllst,

Xxxxxxxxxxxxxxxxx.

Er þetta ekki bara málið? Er að vísu ekki búinn að bera bréfið undir deildarstjórann þannig að allar ábendingar væru vel þegnar sem fyrst.





miðvikudagur, 14. júlí 2004

Bollastærð

Þar sem að færslan hjá mér í gær var svo væmin eitthvað hef ég ákveðið að vera aðeins "karlmannlegri" í dag. Færsla dagsins fjallar um brjóstahaldarastærð.

Veit fólk almennt hvernig þetta er mælt og út frá hverju er gengið?

    * Fyrst er tekið ummál í tommum í kringum rifbeinsbúr(ribcage) fyrir neðan brjóst.
    * Þá er mælt á sama hátt yfir brjóst þar sem þau eru stærst, yfirleitt yfir gervörtum(má ekki strekkja á málbandinu).
    * Bæta fimm tommum við fyrra málið(rifbeinsbúr). Ef það er oddatala þá skal fara í næstu sléttu tölu fyrir ofan, t.d. ef upphaflega mál er 26 þá er bætt við 5 sem verður 31 og þá verður stærð brjóstahaldarans = 32.

    * Til að finna bollastærð(cupsize) er borið saman rifbeinsmál og brjóstmál og þá er notast við þessa töflu hér fyrir neðan:











    Mismunur Bollastærð
    Sama ummál = A
    Upp um eina tommu = B
    Upp um tvær tommur = C
    Upp um þrjár tommur = D
    Upp um fjórar tommur = DD
    Upp um fimm tommur = E
    Upp um sex tommur = F
    Upp um sjö tommur = FF
    Upp um átta tommur = G

    * Til dæmis ef málið sem var fundið út hérna á undan var 32 og brjóstmálið var 35 tommur þá er 35 - 32 = 3 sem er bollastærð D þá er brjóstarhaldarinn 32D!



Ég myndi til dæmis áætla að þessi stúlka væri ekki að skilja þessa útreikninga, hún hefur örugglega strekkt fullmikið á málbandinu. Hún hefði gott af því að kíkja á www.garon.blogspot.com.


Ég vissi að þetta væri reiknað einvernveginn svona en ekki vissi ég það upp á hár. Þá langar mig að spyrja þig lesandi góður, vissir þú þetta allt saman? Spurningunni er beint að bæði konum og körlum.

þriðjudagur, 13. júlí 2004

Augun mín og...

Fyrirgefðu en er það einhver vitleysa í mér eða er nýja auglýsingin frá Umferðarstofu(Augun mín og augun þín) ekki bara snilldin ein? Loftmyndir af þjóðvegum landsins þar sem maður á að sjá móta fyrir mynd af látnu fólki í malbikinu. Maður finnur gæsahúðina hríslast upp eftir bakinu þegar að bíllinn þýtur inn í rammann í lokinn. Ekki skemmir að Ragnheiður Gröndal(held ég) syngur Vísur Vatnsenda-Rósu undir allan tíman, það er eitthvað við röddina í henni. Og síðast en ekki síst skemmir alls ekki fyrir að Kristín Una, dóttir Maríu systir, er aðalstjarnan í auglýsingunni, litla stelpan í upphafi.

Vísur Vatnsenda-Rósu

Augun mín og augun þín.
Ó þá fögru steina.
Mitt er þitt og þitt er mitt,
þú veist hvað ég meina.

Langt er síðan sá ég hann
sannlega fríður var hann.
Allt sem prýða má einn mann,
mest af lýðum bar hann.

Þig ég trega manna mest,
mædd af tára flóði.
Ó, að við hefðum aldrei sést
elsku vinurinn góði.


Skáld-Rósa Guðmundsdóttir



"Ó þá tíma, þegar ljóð gátu byrjað á Ó."

mánudagur, 12. júlí 2004

Útilega/Útileiga/Útilega/Útlega

Góðan daginn hér. Upphaflega hugmyndin í bloggstandinu var að blogga á hverjum degi og hafa þetta einhverskonar dagbók, ég sé það núna að það gengur ekki upp.

Við Dýa fórum í útilegu um helgina.
Staðsetning?: Þrastalundur.
Ferðafélagar?: Ingi(bróðir Dýu), Heiðbjört(kærasta Inga), Sigvarður litli(sonur þeirra), Davíð(stjúpbróðir Dýu), Jökull litli(Sonur Davíðs), Kristín(stjúpsystir Dýu) og Atli(bróðir Dýu) mætti þarna í mýflugumynd. Fínir ferðafélagar alveg hreint.
Matur?: Já takk.
Ölvun?: Já, allavega á föstudagskvöld/nótt/laugardagsmorgun.
Þynnka?: Á laugardeginum já, en samt ekki sú versta.
Gott að sofa í tjaldi?: Nei, engan veginn.
Guðlaugur?: Já, tvisvar.

Guðlaugur = = =

Uppfært: Fyrir þá sem ekki vita þá er Guðlaugur "fulli kallinn" sem er alltaf á þeim svæðum sem fleiri en 20 manns koma saman. Hann kom tvisvar til okkar á tjaldsvæðið og var leiðinlegri í bæði skiptin. Guðlaugur er holdgervingur ömurleikans.


Þetta var ágætt allt saman en það var líka mjög gott að liggja í sófanum á sunnudeginum þegar maður var kominn heim. Með steinsteypta veggi, loft og gólf allt í kring, DVD og heimabíó, ískalt gos með klaka í og afganga útilegunnar til að narta í. Ég hef ekkert á móti útilegum en maður verður að vera vel græjaður.

Það er mikið búið að hlaðast upp hjá mér af umsóknum um sjúkradagpeninga síðustu daga aðallega vegna leti og einbeitingarskorts. Nú er annaðhvort að bretta upp ermarnar og rumpa þessu af eða bara að synja öllum og stinga umsóknunum inní skáp.

ps.
Siggi ef þú ert að lesa, er einhver stigamennska í kvöld?

fimmtudagur, 8. júlí 2004

Könnun

Ég er að prófa að setja inn könnun hérna á þetta blogg, takið þátt endilega. Þetta var einhver könnun sem var sjálfgefin í upphafi, ég límdi bara einhvern kóða inn í HTML-ið.
Þarna
*Uppfært: Búinn að þýða könnunina yfir á íslensku án séríslenskra stafa þó. Skýlaus krafa af hálfu Bjórmálaráðherra sem ekki var hægt að skorast undan.
Það má búast við því að niðurstöðurnar úr þessari könnun verði sláandi og muni jafnvel hafa áhrif á líf á öðrum plánetum!



Talandi um kannanir, kjósum Eið Smára sem fyrirliða Chelsea á heimasíðu félagsins(neðar til vinstri). Heimasíða Chelsea FC



miðvikudagur, 7. júlí 2004

Hugleiðing ein

Heyrði í útvarpinu í dag þar sem einhver lögfræðingur var að tala um það að ef nýju fjölmiðlalögin fara í gegnum alþingi og Óli 4seti synjar undirskrift og þau fara í þjóðararkvæði og þau eru felld þar, þá taka gildi þau lög sem voru í gildi áður. Og hvaða lög eru það? Jú lögin sem Óli 4seti er nú þegar búinn að synja og áttu að fara í þjóðaratkvæði. Þetta er ótrúleg glufa í þessum stjórnskipunarlögum, það væri hægt að búa til langa og nánast óleysanlega endaleysu í kringum þessa glufu. Það eina sem gæti bjargað málunum er að menn umgangist stjórnarskránna og stjórnskipunarlögin af virðingu og brjóti odd af oflæti sínu.

Hvernig er hægt að misskilja þetta?:
26. gr. Ef Alþingi hefur samþykkt lagafrumvarp, skal það lagt fyrir forseta lýðveldisins til staðfestingar eigi síðar en tveim vikum eftir að það var samþykkt, og veitir staðfestingin því lagagildi. Nú synjar forseti lagafrumvarpi staðfestingar, og fær það þó engu að síður lagagildi, en leggja skal það þá svo fljótt sem kostur er undir atkvæði allra kosningarbærra manna í landinu til samþykktar eða synjunar með leynilegri atkvæðagreiðslu. Lögin falla úr gildi, ef samþykkis er synjað, en ella halda þau gildi sínu.


Þetta er allt hið vandræðalegasta fyrir stjórnarflokkana. Svipað og þegar Ingibjörg Sólrún laug því að kjósendum að hún ætlaði ekki að bjóða sig fram til alþingis.

Annars hugar

Á voðalega erfitt með að einbeita mér að vinnunni þessa dagana, hugurinn er annarsstaðar og í allt öðrum pælingum en útdeilingu bóta. Þannig er að ég er með umsókn í Háskóla Íslands um nám í Lögfræði í haust og núna rétt í þessu var ég að fá staðfestingu frá skrifstofu nemendaskráar Háskólans að ég sé búinn að fá inngöngu! Nú þarf maður bara að finna leiðir til að fjármagna þetta allt saman, innritunargjald, bækur, húsnæði og fleira, og sennilega eitthvað fleira ofan á það. Er með umsókn í Stúdentgörðum en síðast þegar ég gáði var ég númer 150 í röðinni eða eitthvað álíka, veit einhver um það hvort hægt sé að fara bakdyramegin þarna inn? Ef svo er þá er e-mailið mitt hérna fyrir neðan færsluna.



Nokkur skemmtileg sektardæmi:
REGLUGERÐ um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim.

6. gr. Leikir o.fl.
1. mgr.: Stokkið af eða upp í ökutæki á ferð eða verið utan á ökutæki á ferð 5.000
2. mgr.: Hangið í ökutæki á ferð 5.000
3. mgr.: Leikur á vegi veldur óþægindum fyrir umferð 5.000

9. gr. Skemmdir á umferðarmerkjum
1. mgr.: Umferðarmerki numið á brott eða breytt 5.000

10. gr. Skyldur við umferðaróhapp
1. mgr.: Eigi numið staðar og veitt hjálp 10.000
Neitað að skýra frá nafni og heimilisfangi 10.000

14. gr. Hvar skal aka á vegi
1. mgr.: Ökutæki eigi haldið nægjanlega til hægri 5.000
3. mgr.: Of stutt bil milli ökutækja 5.000

27. gr. Stöðvun ökutækis og lagning þess
2. mgr.: Lagt á röngum vegarhelmingi o.fl. 5.000
4. mgr.: Eigi gengið frá ökutæki með tryggilegum hætti 5.000
5. mgr.: Dyr ökutækis opnaðar til hættu eða óþæginda o.fl. 10.000

35. gr. Óþarfa hávaði o.fl.
1. mgr.: Óþarfa hávaði frá vélknúnu ökutæki 5.000
Óþarfa loftmengun frá vélknúnu ökutæki 5.000

45. gr. Ölvunarakstur
6. mgr.: Stjórnað eða reynt að stjórna hjóli eða hesti undir áhrifum áfengis eða annarra örvandi eða deyfandi efna 5.000

77. gr. Óhreinkun vegar o.fl.
1. - 2. mgr.: Munum fleygt eða þeir skildir eftir á vegi þannig að þeir hafa í för með sér hættu eða óþægindi fyrir umferð 10.000



þriðjudagur, 6. júlí 2004

Munaði litlu...





The Far Side

Fór í bakaríið í morgun og bað um kleinu, tók ekki eftir því fyrr en áðan að þetta var vínarbrauð sem ég fékk, bara ágætis vínarbrauð. Fæ mér pottþétt kleinu aftur.

Hef lítið að segja núna en sjáum til hvað gerist seinna í dag, það eru ævintýri sem bíða manns á hverju horni, sérstaklega þegar maður er að vinna á Tryggingastofnun ríkisins.

En núna langar mig að vekja athygli á teiknimyndaseríu sem heitir "The Far Side". Þessi teiknari hefur einstakt lag á að fá mig til þess að brosa, svona hugsa birnirnir í "The Far Side":


mánudagur, 5. júlí 2004

Gamall skápur

Laugardagskvöldið á landsmótinu var ekki með jafnháan stuðsstuðul eins og föstudagskvöldið. Hápunkturinn var eiginlega þegar ég, Grettir og Siggi sátum inni í bíl í dágóða stund og fórum yfir stöðuna, ræddum málin og létum allt flakka.

Fór svo í gær á Metallica tónleikana með Ásgeiri frænda, við fengum frímiða sem frænka okkar reddaði óvænt. Vorum ca. 2 tíma í bæinn vegna umferðar, manni leist ekki á blikuna þegar við blasti að tónleikagestir voru að leggja bílnum sínum nánast út við Vestulandsveg, án gríns. Ákvað að skoða málið betur og endaði í löglegu stæði ca. 100 metrum frá aðalinnganginum á besta stað. Þegar maður kom inn fann maður til smæðar sinnar því að annað eins mannhaf hef ég ekki séð áður með berum augum, 18.000 manns í 10 - 11 þúsund fermetra gufubaði. Ég kannaðist við eitt lag...held ég...og aðalmálið var að rekast ekki utan í löðrandi sveitta unglingana, var aðallega úti í anddyri að skoða mannlífið. Ásgeir fann félaga sína að norðan og þeir sáu um sig. Þraukaði til kl. 23 og þá fórum við á Hellu aftur. Sofnaði í kringum eitt leytið og vaknaði kl. 6 til að keyra í bæinn aftur. Ég er þreyttur gamall skápur í dag.

laugardagur, 3. júlí 2004

Fór á...

þetta landsmót í gær, það var ljómandi gaman bara, hestarnir voru aukaatriði. Fór allt friðsamlega fram fannst mér, maður var að veltast þarna til 7 náttúrulega. Mættum tengdó í eldhúsinu þar sem þau voru nývöknuð. Ég týndi símanum mínum og er búinn að vera í smá bömmer yfir því en núna rétt í þessu var ég að frétta það að hann var allan tímann inni í bílnum hjá Gretti þannig að það kætir mann aðeins. Nú er maður að reyna að safna orku til að fara aftur þarna uppá svæði, ég hálf nenni því ekki eins og er en ætli maður slái samt ekki til. Maður er að verða gamall eða er orðinn það nú þegar.



Skál.


föstudagur, 2. júlí 2004

Off...

to Hella. Sjáumst á landsmóti.


Hvað gæti hann verið að segja þarna?

"Herra dómari, leyfi til þess að nota snyrtinguna?"


Sennilega mynd vikunnar.

Stóra majónesdósarmálið!

Majonesdós risin í óleyfi við Suðurlandsveg
Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður á Selfossi segir að ekki verði annað séð en að majonesdós nokkur mikil við Suðurlandsveg rétt vestan Þjórsár sé risin þar í óleyfi viðkomandi yfirvalda og um brot kunni að vera á náttúruverndarlögum.
Samkvæmt upplýsingum frá sýslumanni hefur hann látið fara fram könnun hjá viðeigandi yfirvöldum og niðurstaða hennar er sú, að engin leyfi hafa verið veitt.

Ólafur Helgi segir að ekki hafi verið leitað til sýslumanns á Selfossi um leyfi þrátt fyrir að svo hafi mátt skilja í fréttum sjónvarps klukkan 22 í gærkvöldi.

Hann segist vænta þess að „ónákvæmum fréttaflutningi af majonesdósinni linni þar til eigendur hafa leitt í ljós hverra leyfa þeir hafa aflað sér til þessar staðsetningar.“ Málið er áfram til athugunar hjá sýslumannsembættinu.


Þegar ég sá þessa dollu fannst mér ég vera kominn til Bandaríkjanna, þó að ég hafi aldrei komið þangað hefur maður séð myndir þaðan af þjóðvegum þar sem auglýsingar eru oft eitthvað á þessa leið, hlutur sem allir þekkja í ákveðinn stærð tekinn og margfaldaður hlutfallslega upp þannig að hann ögri áhorfandanum. Erum við alltaf að líkjast Bandaríkjamönnum meir og meir? Mér finnst það og vil ég nefna til dæmis nýlegan dóm í Hæstarétti í Stóra málverkafölsunarmálinu, þar voru í fyrsta skipti í íslenskri réttarfarssögu(að mér skilst) ekki tekin gögn til greina sem sönnuðu sekt manna því að öflun þeirra var ekki með löglegum hætti. Hvað hefur maður ekki oft séð þetta í bíómyndunum? Morðvopnið fannst í skotti grunaðs morðingja en það gleymdist að fá leitarheimild og því má ekki nota sönnunargagnið fyrir rétti. Eða eitthvað álíka. Þetta er sjálfsagt erfitt að eiga við allt saman. Hvað finnst þér?


Þess má geta að þetta majónesmál kemur mér ekkert við þó að nafnið mitt standi stórum stöfum á dollunni.

Spekingar spjalla...

Hef lítið að segja en í tilefni af landsmóti hestamanna langar mig að benda á umræðu á annarri bloggsíðu þar sem fróðir menn spjalla um hross og ýmislegt sem þeim viðkemur. Þar eru fremstir í flokki þeir bræður Helgi og Garðar, vel þekktir í hestaheiminum. Þess má geta að Samúel Örn hefur alla sína hestavitneskju frá þeim. Smellið hér. Af síðu Helga.

Annars líst mér ekkert á þetta landsmót.

fimmtudagur, 1. júlí 2004

Andskotinn hafi það

Jæja þá er búið að eyðileggja fyrir manni úrslitaleikinn, leiðinlegt og varnarsinnað lið Grikkja sér til þess. Ég vona að Portúgalar rúlli hressilega yfir þá en á því eru litlar líkur þar sem að Grikkir spila eins og Þjóðverjar, enda er þjálfari Grikkja Þjóðverji. Og nú eru þeir orðnir Grikkverjar sem er tvöfalt verra en að vera bara Þjóðverji eða Grikki. Þá er þetta allavega komið á hreint.

Takk fyrir.

Fróðleiksmoli dagsins

ELVIS FACTS

Birth Name: Elvis Aaron Presley
Birthdate: January 8, 1935
Birthplace: Tupelo, MS
Date of Death: August 16, 1977
Occupations: Actor, Musician

Family:
Brother: Jesse Garon, Elvis' twin; born January 8, 1935; died same day
Mother: Gladys Smith Presley; born April 25, 1912; died August 14, 1958
Father: Vernon Elvis; born April 10, 1916; died June 26, 1979
Daughter: Lisa Marie; born February 1, 1968; married and divorced Michael Jackson.


Kominn í...

bæinn aftur og er rennsveittur hér í TR að reyna að afgreiða þjóðina um bæturnar sem það á skilið. Eða hvað?
Mest sláandi við þetta starf mitt finnst mér hvað margir krakkar eru ungir sem sækja um sjúkradagpeninga. Einn skjólstæðingur sem ég afgreiddi um daginn var fæddur árið 1987 og var að koma úr meðferð, langri meðferð, tæpt ár með smá hléum. Þetta væri kannski nóg en í læknisvottorðinu stóð að viðkomandi væri búinn að eiga við áfengisvandamál frá 11 ára aldri! Hvað er að gerast í þessu þjóðfélagi?

Jæja svo er leikur í kvöld, Tékkland-Grikkland, og að sjálfsögðu halda allir með Tékklandi þar sem að liverpoolmaður er þar fremstur í flokki, Milan Baros. Ég spáði 2-0 í tippleiknum sem Helgi Jóns stendur fyrir. Ég er búinn að missa af lestinni í toppbaráttunni þannig að ég lét Dýu bara spá fyrir leikina í dag og í gær. Hún krækti í 1 stig fyrir mig í gær í Portúgalsleiknum, hún spáði 3-2 fyrir Portúgal en Portúgal vann 2-1, ekki svo fjarri lagi. Nú er bara að bíða og sjá hvort það verði fullt hús stiga í kvöld.

Sláandi frétt hér, heimildamenn mínir segja mér að þetta sé bíllinn hans Krilla/Jonna/Kristjóns bróður tengdamömmu. Þess má geta að það var ekki ég sem var á bílnum þó svo að það stemmi við ferðalög mín á síðasta sólarhring.

Tilvitnun af síðunni hans Sævars vinar míns:
"Ólafur Ragnar Grímsson er eins og strokleður í framan".

Hér er einmitt mynd af Ólafi þegar hann var nýdottinn af hestbaki á Leirubakka, öskrandi og emjandi eins og stunginn grís.


...það er nokkuð til í þessu ef maður spáir í það.

miðvikudagur, 30. júní 2004

Fór í...

klippingu til Maríu í gær og kann ég henni bestu þakkir fyrir, eins og alltaf. Mig minnir að ég hafi gleymt að þakka henni fyrir í gær, maður er svo mikill köttur.
Fór svo í Playstation fótboltamót/keppni við feðgana Mikka og Gabríel, varð neðstur og tapaði í fyrri umferð en meig yfir þá í seinni umferðinni, þó aðallega Mikka, þeir hafa sennilega vanmetið mig eftir fyrri umferðina. :) Þetta var ágætis tilbreyting frá ömurlegum einmannaleikanum sem umlykur mig þessi misserin, bý einn í Hafnarfirðinum og Dýa á Hellu.

En ég er að fara á Hellu á eftir og verð þar í nótt og kem aftur í fyrramálið. Myndi fara á hverjum degi ef helv.... bensínið væri ekki svona dýrt. Afhverju er ekki komið fullkomið hraðlestakerfi hér á þetta land!?...öskra ég á ískalda nóttina sem svarar með tómleika sínum. Þá væri maður bara ca. 12 mínútur á milli Reykjvíkur og Hellu með lest sem fer á 500 km/klst. Allt um það hér

þriðjudagur, 29. júní 2004

Hef verið gerður að lögmanni Góðbjórs, óska sjálfum mér til hamingju með það!

Góðbjór